Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | „Mesti ávinningur verkefnisins eru þau góðu tengsl sem orðið hafa bæði milli kennara og nemenda. Það er yndislegt að sjá hvað leikskólabörnin eru örugg innan veggja skólans og það á sannarlega eftir að koma þeim til góða þegar þau hefja grunnskólagöngu. Eldri nemendurnir blómstra líka,“ sögðu stjórnendur Comeniusarverkefnisins sem leikskólinn Gimli og Njarðvíkurskóli vinna að í sameiningu ásamt fimm öðrum Evrópulöndum. Blaðamaður settist niður með leikskólakennurunum Guðrúnu Sigurðardóttur, Hafdísi Helgu Þorvaldsdóttur og Sólveigu Bjarnadóttur og grunnskólakennurunum Hörpu Magnúsdóttur, Helenu Rafnsdóttur og Katrínu Baldvinsdóttur við undirbúning Comeniusarráðstefnu í Reykjanesbæ dagana 26.-30. apríl.
Leikskólinn Gimli er fyrsti leikskólinn í Reykjanesbæ sem tekur þátt í Comeniusarverkefni en Njarðvíkurskóli hefur nokkrum sinnum tekið þátt. Comeniusarverkefnið er innan menntaáætlunar ESB en markmið þess er að styrkja samstarf milli evrópskra skóla með því að koma á sambandi milli nemenda, styrkja kennaraskipti og auka þekkingu á menningu, lífsháttum og tungu annarra þjóða. Þátttökulönd verða að vera a.m.k. þrjú og skólarnir jafnmargir. Verkefnið stendur yfir í tvö ár og geta samstarfsverkefnin verið af ýmsum toga.
Kynslóðabilið brúað
Áherslan hjá Gimli og Njarðvíkurskóla er að brúa bil á milli kynslóða með samvinnu undir kjörorðinu „Side by side in education“. Nafnið kom frá Hörpu Magnúsdóttur í Njarðvíkurskóla og aðdraganda þátttökunnar má einnig rekja til hennar. „Þannig var að kennari í spænska skólanum C.E.I.P., José María del Campo í Sevilla, vildi komast í samstarf við skóla á Íslandi en fyrir var íslensk stúlka í skólanum. Hann hafði samband við foreldra stúlkunnar sem töluðu við frænku mína sem benti á mig þar sem hún vissi að ég talaði spænsku,“ sagði Harpa.
Í ársbyrjun 2008 fór Harpa ásamt Guðrúnu Sigurðardóttir frá Gimli í undirbúningsferð til Spánar og eftir rúmlega hálfs árs undirbúningsferli var hægt að hefja verkefnið síðastliðið haust. Leikskólinn Gimli var drifinn með þar sem samstarfsskólinn á Spáni er fyrir börn 2 til 12 ára og Gimli er í sama hverfi og Njarðvíkurskóli. Önnur lönd eru Ítalía, Wales, Frakkland og Ungverjaland.
Bætt ofan á þekkingu
Leikskólabörn í Gimli og grunnskólabörn í Njarðvíkurskóla koma í reglulegar heimsóknir hvor til annars og vinna að sameiginlegum verkefnum, auk þess sem hver skóli fyrir sig vinnur að verkefnum um þátttökulöndin og sýnir afrakstur vinnunnar innan skólans.
„Við byrjuðum á því að hengja þjóðfána hvers lands upp á vegg og höfum svo bætt ofan á þekkinguna smám saman. Oft búa foreldrar barnanna yfir þekkingu um löndin og eru þá tilbúin til að heimsækja okkur í skólann og segja frá,“ sagði Sólveig Bjarnadóttir leikskólakennari. Hún sagði börnin hafa verið mjög fljótlega meðvituð um þjóðirnar og ýmis vitneskja hefur komið þeim á óvart.
„Börnin voru sérstaklega hissa á því að það væri bara einn jólasveinn í hinum löndunum,“ sagði Helena. Siðir og venjur jólanna eru meðal verkefna sem þátttökulöndin hafa unnið að í sameiningu og fyrirhugað er að vinna með tómstundir og matarhefðir næst. Þátttökulöndin halda úti bloggsíðu þar sem efni frá öllum þátttökulöndum er birt og sameiginlegt fréttabréf er gefið út fjórum sinnum á ári með fréttum úr starfi verkefnisins.
Gimli hefur auk þess búið til anga innan verkefnisins þar sem kynslóðabil er brúað með reglulegum heimsóknum og samstarfi milli leikskólans og eldri borgara á Nesvöllum.
Yndislegt að sjá hvernig börnin nálgast
Leikskólakennararnir Guðrún, Hafdís og Sólveig segja engan vafa leika á því að samstarf leikskólans og grunnskólans eigi eftir að auðvelda leikskólabörnunum upphaf grunnskólagöngu þar sem þau séu orðin mjög örugg inna veggja skólans og þekki vel bæði innviði skólans og kennarans.
„Þau heilsa okkur mjög kumpánlega þegar þau mæta okkur á förnum vegi eða í búð,“ sagði Helena og nefndi auk þess að grunnskólabörnin græddu ekki síður á samvinnunni. „Í heimsóknum leikskólabarnanna förum við á skólabókasafnið og lesum. Grunnskólanemendurnir lesa fyrir leikskólabörnin og þessi lestur hefur hjálpað þeim börnum sem rög eru við að lesa í tímum. Þau finna til öryggis með leikskólabörnunum sem líta upp til þeirra og meta lesturinn.“ Í heimsóknunum til leikskólans vinna börnin saman í ýmsum stöðvum og sögðu þeir yndislegt að sjá hvernig börnin nálguðust.
Í Íslandsheimsókninni munu þátttökulöndin meðal annars fá að kynnast samvinnu barnanna, en vinnuferðin stendur í fjóra daga. Auk verkefnatengdrar vinnu fá gestirnir að kynnast Reykjanesskaganum og vera við opnun Listahátíðar barna sem hefst í Duushúsum 30. apríl. Næsta ráðstefnuland verður Ungverjaland.